Almennir skilmálar
Skilmálar
Hér getur þú lesið skilmála okkar ef þú ert í stuði og vilt lært meira um þau viðmið sem við vinnum eftir.
Ef þú fræðast sérstaklega um persónuverndarstefnu okkar, getur þú smellt hérna. Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir þú að þú hafir lesið þá og meðtekið efni þeirra.
Persónuvernd og vefkökur
Fyrir okkur er öryggi í fyrirrúmi og leggjum við mikið upp úr því að tryggja okkar viðskiptavinum að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar með þeim hætti. Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu okkar hérna, þar sem einnig er hægt að nálgast vefkökustefnu okkar. Vefkökurnar eru litlar textaskrár sem vefsvæðið setur inn á tölvuna þína til þess að Metta þekki þig aftur og viðskiptin verði straumlínulöguð.
Tilkynningar
Metta hefur leyfi til að senda þér tilkynningar með rafrænum hætti á það netfang og eða símanúmer sem notandi hefur gefið upp í tengslum við þjónustuna. Metta reynir að tryggja að allar tilkynningar berist notanda fljótt og örugglega en ábyrgist þó ekki að tilkynningar komist rétt og tímanlega til skila. Metta ber enga ábyrgð á og er ekki skaðabótaskylt vegna þeirra tilkynninga sem Metta kann að senda þér, hvorki vegna innihalds né vegna þess að tilkynningar berast ekki á réttum tíma. Með því að samþykkja þessa skilmála veitir þú Metta leyfi að senda þér tölvupóst í markaðslegum tilgangi (það er alltaf hægt að afskrá sig af póstlistum Metta).
Öryggisbrestur
Ef að þú verður var eða vör við óeðlilega notkun eða greiðslur af greiðslukortinu þínu á Metta Sport sem þú telur þig ekki hafa framkvæmt, týndir símanum eða grunar að óviðkomandi aðili hafi vitneskju um aðgangsupplýsingar að Metta Sport aðgangi þínum, er það á þinni ábyrgð að láta okkur vita eða loka án tafar fyrir aðganginn og/eða kortið. Metta Sport áskilur sér þann rétt að loka fyrir aðganginn þinn eða aðra notenda ef grunur er um misnotkun eða ranga notkun af einhverju tagi kemur upp, að einhliða mati Metta Sport.
Öryggi á vefnum
Við leggjum okkur fram við að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinganna þegar keyptar eru vörur hjá Metta. Nánar í persónuverndarstefnu Metta.
Breytingar á skilmálum
Þú hefur aðgang að gildandi skilmálum á vef Metta. Metta áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum skilmála einhliða. Komi til breytinga á skilmálum sem eru þér til óhagræðis munu þær verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara með skilaboðum í gegnum appið, SMS-tilkynningu eða tölvupósti á skráð netfang. Aðrar breytingar sem eru til hagræðis fyrir notanda, má tilkynna með skemmri fyrirvara. Þú samþykkir framangreindar aðferðir við upplýsingagjöf til þín. Í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á því í hverju breytingar eru fólgnar og réttar þíns til að segja upp þjónustunni. Við lítum svo á að þú hafir samþykkt breytingar ef þú notar Metta eftir að nýir skilmálar hafa verið kynntir og teknir í gildi. Metta áskilur sér rétt til að hafa samskipti við þig og aðra notendur í gegnum SMS-skilaboð, með skilaboðum í gegnum appið eða tölvupósti á skráð netfang.
Gildistími
Skilmálar þessir eru gefnir út af Metta Sport ehf. og gilda frá og með 1. júní 2021 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.